Þetta lag þykir mér talsvert vænt um en það fæddist vorið 2011 og tengist stelpu sem ég var að hitta á þeim tíma. Stundum er gott að leyfa bara hlutunum að flæða og viðlagið kom fljótt og vel til mín en versin voru aðeins að flækjast fyrir mér í byrjun.
Það er dálítill Country keimur yfir þessu svo að ég var alltaf með bak við eyrað að fá söngkonu á móti mér en ákvað fyrst að syngja yfir þetta alveg sjálfur. Heyrði samt að það vantaði X factorinn í þetta og þá fékk ég hana Regínu Ósk til þess að syngja þetta á móti mér sem hún gerði með glæsibrag enda þaulvön og var ekki lengi að finna rétta fílinginn á móti mér. ´
Stefán Henrýsson sá um píanóleikinn eins og á allri plötunni, Davíð Þór Hlinason sá um rafgítar og strengi, Þröstur Jóhannsons um kassagítar og Karl Petska sá um fiðluleik
Hérna kemur lagið og textinn er hérna fyrir neðan
Ég og þú
Biðum of lengi
Upp á von og trú
Að efinn hyrfi
En hamingjan er hverful
og við fjarlægðumst
og fórum á mis
Eg reyndi og reyndi
En aldrei þér gleymdi
því leita ég aftur til þín
Mig langar i ljósid Þitt bjarta
í faðm þinn og Finna þitt hjarta
Slá i takt vid mitt
Vil vera um kyrrt
Ó segdu ei ad eg se of seinn
Vil ekki lengur vera einn
Vil vera hja þer
Viltu vera hja mer
Í upphafi
Skal endinn skoða
en trúðu mér
Því ég þér lofa
að hugur minn
er heill er ég segi
Ég vil vera þín
á hverjum degi
Ég reyndi og reyndi en aldrei þér gleymdi
Því leita ég aftur til þín
Mig langar i ljósid Þitt bjarta
í fadm þinn og Finna þitt hjarta
Slá i takt vid mitt
Vil vera um kyrrt
Ó segdu ei ad eg se of seinn
Vil ekki lengur vera einn
Vil vera hja þer
Viltu vera hja mer